0 Comments
Loksins var hægt að halda hundasýningu og voru það eingöngu hvolparnir sem fengu að láta ljós sitt skína að þessu sinni. Laugardaginn 12. júní hélt HRFÍ hvolpasýningu á Víðistaðatúni og voru 5 írskir setar, 7 mánaða, sem tóku þátt. Öll fengu þau SL (sérlega lofandi) og eiga eftir að sýna glæsta takta í sýningahringnum í framtíðinni.
BOB: Eðal-Óskadís BOS: Eðal-Óskadraumur Aðalfundur Írsk setter deildarinnar var haldinn 22. mars 2021 að Leirum kl. 20:00
Lagt var til að Margrét væri fundastjóri og Ásdís fundaritari og var það samþykkt einróma. Fundarstjóri kannaði lögmæti fundar og var hann boðaður eins og gert er ráð fyrir. Dagskrá fundar: 1. Skýrsla stjórnar 2. Stjórnarkjör 3. Önnur mál Skýrsla stjórnar: Farið var yfir sl. ár en ekki var mikið um að vera en engar sýningar voru og engir skráðir nýir meistaratitlar á árinu. Áætlað var að halda veiðipróf deildarinnar 1. – 3. maí 2020 en var því frestað og hefur nú verið sett 24. og 25. apríl 2021. Engar augnskoðanir voru á vegum HRFÍ á síðasta ári. Þrjár niðurstöður úr mjaðmamyndatökum voru skráðar, tvær voru A/A og ein var C/B. Ein tík var innflutt frá Svíþjóð, eigandi Valgerður Júlíusdóttir. Þrjú got voru skráð. Fimm hvolpar fæddust hjá Melahofs-ræktun 7. maí 2020. Ræktandi Ásta Fr. Björnsdóttir. Átta hvolpar fæddust hjá Eðal-ræktun 23. október 2020. Ræktandi Hreiðar Karlsson og Elín Gestsdóttir. Einn hvolpur fæddist hjá Melahofs-ræktun 26. febrúar 2021. Kynnt var endurskoðun á 10. kafla í reglum um skráningu í ættbók og sátu Elín, Ásdís og Margrét kynningarfund hjá HRFÍ. Þær breytingar voru gerðar hjá írskum setum að gildi augnvottorðs lengist og gildir í 25 mánuði og breyting varðandi mjaðmamyndir er að hundar sem greinast með HD niðurstöðu C eða D skulu einungis parast með hundum með A eða B niðurstöðu. Greinist hundur með E niðurstöðu fást hvolpar undan honum ekki ættbókarfærðir. Þessar nýju reglur taka gildi 1. apríl 2021. Skilað var inn tegundarlýsingu að ósk HRFÍ vegna uppfærslu á www.voff.is. Stórhundadögum vor og haust í Garðheimum var aflýst síðasta ár. Þýðing á norsku veiðiprófareglunum var kynnt á deildarsíðum tegunda í tegundahópi 7. Egill Bergmann og Bragi Valur Egilsson hafa verið fulltrúar deildarinnar. Tóku þessar reglur gildi 1. mars 2021. Stjórnarkjör: Þrjú sæti eru laus. Elín, Egill og Ásdís eiga að ganga úr stjórn. Egill og Ásdís gáfu kost á sér áfram en Elín gaf ekki kost á sér áfram og kunnum við henni þakkir fyrir það starf sem hún hefur unnið fyrir deildina. Jóhannes Smári Ólafsson gaf kost á sér í stjórn og voru þau Egill, Ásdís og Jóhannes kosin einróma til næstu tveggja ára. Stjórnina skipa því næsta árið: Ásdís Bragadóttir Egill Bergmann Hreiðar Karlsson Jóhannes Smári Ólafsson Margrét Kjartansdóttir Önnur mál: Engin önnur mál voru lögð fram á fundinum Fundi slitið kl. 20:30. Veiðipróf Írsk setter deildarinnar sem vera átti 24. og 25. apríl nk. hefur verið frestað vegna þröngra sóttvarnarskilmála. Nýjar dagsetningar verða auglýstar síðar.
Ársfundur Írsk setterdeildar var haldinn 22. mars 2021 að Leirum.
Þrjú sæti voru laus í stjórn og bárust þrjú framboð. Kosningu til tveggja ára hlutu Egill Bergmann, Ásdís Bragadóttir og Jóhannes Smári Ólafsson. Elín Gestsdóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og þakkar stjórn henni samstarfið undanfarin ár. Núverandi stjórn skipa: Ásdís Bragadóttir, formaður, Egill Bergmann, Hreiðar Karlsson, Jóhannes Smári Ólafsson, ritari og Margrét Kjartansdóttir. Ársfundur deildarinnar verður haldinn 22. mars á Leirum kl. 20:00
Dagskrá: Skýrsla stjórnar lögð fram til samþykktar Stjórnarkjör – 3 sæti laus til 2ja ára Önnur mál Kosningarétt hafa skuldlausir félagar HRFÍ sem eiga Írskan setter. Hjón/pör hafa bæði kosningarétt, hvort sem þau greiða félagsgjald HRFÍ sem hjónagjald eða í sitt hvoru lagi. Stjórn hvetur félaga til að mæta og taka þátt í deildarstarfinu. Virðum sóttvarnarreglur og munum eftir grímunni ☺ Nú er lokið þýðingu á norskum veiðiprófareglum og félagsmönnum gefst nú kostur á að koma á framfæri ábendingum/athugasemdum til og með 28. janúar 2021 á netfangið [email protected]
Ársfundur Írsk setterdeildar var haldinn 20. maí á Tröllateigi 29, Mosfellsbæ.
Tvö sæti voru laus í stjórn og bárust þrjú framboð. Kosningu til tveggja ára hlutu Margrét Kjartansdóttir og Hreiðar Karlsson. Guðrún Dögg gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og þakkar stjórn henni samstarfið undanfarin fjögur ár. Núverandi stjórn skipa: Elín Gestsdóttir formaður, Egill Bergmann, Ásdís Bragadóttir, Margrét Kjartansdóttir og Hreiðar Karlsson Ársfundur deildarinnar verður haldinn að Tröllateig 29, Mosfellsbæ þann 20. maí nk. kl. 20:00
Við munum að sjálfsögðu fara eftir tilmælum sóttvarnarlæknis og halda uppi 2m reglunni. Dagskrá:
Kosningarétt hafa skuldlausir félagar HRFÍ sem eiga írskan setter. Hjón hafa bæði kosningarétt, hvort sem þau greiða félagsgjald HRFÍ sem hjónagjald eða í sitt hvoru lagi. Stjórn hvetur alla félaga til að mæta og taka þátt í deildarstarfinu. |
Archives
March 2024
Categories |