Árleg EÐAL-Jólaganga verður farin í ár laugardaginn 8. desember og höfum við ákveðið að bjóða Félögum í deildinni okkar/eigendum Írskra seta og fjölskyldum þeirra að ganga og gleðjast með okkur líkt og undanfarin ár. Hittumst í hlaðinu á Leirum kl. 14:30, göngum með voffana okkar góðan spöl og endum svo í rjúkandi súkkulaði, jólaglöggi og piparkökum meðan voffarnir bíða stilltir í bílunum sínum. Endilega klæða sig eftir veðri og gott er að vera með taum meðferðis ef einhverjir óþekktarormar eða náttúrumiklir hundar eru í hópnum svo eigendur geti haft hemil á þeim. Hittumst í hátíðaskapi ! Hreiðar og Elín
0 Comments
|