Sagan bakvið Írska Setann
Írski rauði setinn er sennilega með best þekktu og vinsælastu allra írskra hundategunda í dag.
Hann er afrakstur mörg hundruð ára þróunar frá Spaniel hundum. Ein ættkvísl Spaniel hunda varð að Sitjandi Spaniel hundum, þróast síðan í Setter sem síðan greinast út í þær tegundir sem þekkjast í dag.
Snemma á 18. öldinni voru nokkrir stofnar af setter til á Írlandi. En það var ekki fyrr en árið 1793 að farið var að færa þessa hunda til ættbókar og staðlar voru settir í kjölfarið.
Á þessum tímum var írski setterinn hvítur í grunninn og með rauðum flekkjum. Flekkirnir stækka svo og hundurinn verður rauður í grunninn með hvítum flekkjum. Þróunin heldur svo áfram og í lok 18. aldar er hann orðinn alveg rauður. Stundum með smá hvítt á ákveðnum stöðum.
Hann er í dag orðinn jafn útbreiddur í Bretlandi, Bandaríkjunum og á Írlandi.
Írski setinn varð vinsæll á átjándu öld, þegar þeir voru þjálfaðir til þess að finna veiðibráð fyrir skotveiðimenn.
Árið 1882 var félagið The Irish Red Setter Club stofnað í Dublin. Þá var rauði írski setinn orðinn svo vinsæll að í huga flestra var hann orðinn hinn eini Írski seti. Áhuginn dafnaði jafnt og þétt á þessari göfugu hundategund.
Írska hundaræktarfélagið hefur tryggt að rauði írski setinn verði að standast erfið veiðipróf og hefur hann því fleira til bruns að bera en fegurðina eina.
Írski setinn hefur á Írlandi sem og annarsstaðar náð langt í veiðiprófum og unnið til margra verlauna í gegnum tíðina.
Félagar í ýmsum hundafélögum deila oft um kosti einnar hundategundar fram yfir aðra, en rauði írski setinn með sína"írsku heppni" sem hann hefur haft í meira en heila öld, hefur þrifist vel þrátt fyrir niðrandi ummæli andstæðingar sinna. Hann er ekki aðeins blíðlyndur, gáfaður og tryggur vinur, heldur einnig framúrskarandi góður veiðihundur.