Veiðiprófi ÍRSK sem halda átti 1.-3. maí nk. hefur verið aflýst vegna COVID-19
0 Comments
Ársfundinum hefur verið frestað vegna aðstæðna. Nýr fundur verður auglýstur þegar tímasetning liggur fyrir.
Ársfundur deildarinnar Dagskrá:
Kosningarétt hafa skuldlausir félagar HRFÍ sem eiga írskan setter. Hjón hafa bæði kosningarétt, hvort sem þau greiða félagsgjald HRFÍ sem hjónagjald eða í sitt hvoru lagi. Stjórn hvetur alla félaga til að mæta og taka þátt í deildarstarfinu. Um síðustu helgi fór fram Norðurljósasýning HRFÍ Skráðir voru 9 írskir setar. Úrslit urðu eftirfarandi: BOB: Eðal Nói BOS: Ardbraccan Unique Charm "Cara" Nói hlaut alþjóðlegt meistarstig, íslenskt meistarastig og norðurljósastig. Cara hlaut íslenskt meistarastig og norðurljóstastig en er of ung til að fá alþjóðlegt meistarastig. Nói keppti í tegundarhóp en fékk ekki sæti að þessu sinni. Cara var besti ungliði tegundar og fór því í úrslit um besta ungliða sýningar en fékk ekki sæti þar. Bæði eru þau yngri en 2 ára og því er framtíðin björt hjá írskum setum á Íslandi. Nánari úrslit og dóma má finna hér Um helgina fór fram síðasta sýning ársins hjá HRFÍ, Winter Wonderland sýningin. Dómari var Hans van den Berg frá Hollandi og sýndir voru 8 hundar að þessu sinni. Úrslit urðu eftirfarandi: BOB: ISShCh Trawricka Promises Promises (Lúna) með NCAC BOS: ISShCh Cilleigne Adair (Íri) með NCAC Lúna fékk ekki sæti í tegundar hóp að þessu sinni en var verðugur fulltrúi tegundarinnar í úrslitum. Nánari úrslit og umsagnir má finna hér. Helgina 24-25 ágúst fór fram tvöföld útisýning HRFÍ. Á laugardeginum var það norðurlanda sýning og á sunnudeginum alþjóðleg sýning. 8 hundar voru sýndir hvorn dag og fengu allir hundar frábæra dóma. Á laugardeginum urðu úrslit eftirfarandi: BOB: C.I.E ISShCh Eðal Jörundur BOS: C.I.E. NORDICCH ISShCh Gwendariff Choc Nut Chip (Hneta) Besti hvolpur tegundar varð Ardbraccan Unique Charm Besti ungliði tegundar varð Eðal Nóra Á sunnudeginu urðu úrslit eftirfarandi: BOB: C.I.E. ISShCh Eðal Kormákur BOS: Eðal Nóra Besti hvolpur tegundar varð Ardbraccan Unique Charm Besti ungliði tegundar varð Eðal Nóra Frekari niðurstöður og dóma má finna hér og hér Ef einhver á myndir frá sýningunni má gjarnan senda þær á Guðrúnu Dögg á facebook svo hægt sé að birta fleiri myndir. Um helgina fór fram tvöföld sýning HRFÍ í frábæru veðri. Á laugardeginum var Reykjavík Winner og NKU sýning en á sunnudeginum alþjóðleg sýning. 11 írskir setar voru skráðir til leiks en 9 mættu báða dagana. Úrslit laugardags: BOB: C.I.E. ISShCh Gwendariff Choc Nut Chip (Hneta) BOS: ISShCh Cilleigne Adair (Íri) Bæði hlutu þau titilinn Reykjavík Winner 2019 eða RW19 Hneta varð svo í 4 sæti í tegundarhóp. Nánari úrslit og umsagnir má finna hér: https://www.hundeweb.dk/udstilling-resultat/udstilling/190343 Úrslit sunnudags: BOB: Trawricka Promises Promises (Lúna) Enginn rakki hlaut meistaraefni. Lúna fékk sitt síðasta íslenska meistarastig og CACIB og uppfyllir nú öll skilyrði til að hljóta titilinn ISShCh. Hún toppaði svo daginn með 3 sæti í tegundarhóp. Nánari úrslit og umsagnir má finna hér: https://www.hundeweb.dk/udstilling-resultat/udstilling/190344 Frábær sýningarhelgi að baki í góðum félagsskap í sérstaklega góðu veðri og má vona að veðrið leiki svona við okkur aftur í ágúst þegar næsta útisýning verður haldin. Í dag hittumst við í Sólheimakoti og gengum saman.
Það var heldur vindasamt en þurrt og hlýtt svo við létum það ekki á okkur fá. 18 manns mættu með 10 hunda og gengum við góðan hring við Kotið og fengum okkur svo kaffi á eftir. Skemmtilegur dagur og vonumst við til að göngurnar verði fleiri. Takk fyrir samveruna. Þann 27. mars síðast liðinn var ársfundur Írsk setterdeildar haldinn á Leirum.
Mjög dræm mæting var á fundinn. Þrjú sæti í stjórn voru laus en allir stjórnarmenn gáfu kost á sér áfram. Þar sem ekki bárust mótframboð voru þeir sjálfkjörnir. Stjórn situr því óbreytt. Stjórnina skipa:
Ársfundur deildarinnar verður haldinn 27. mars kl. 20:00 á Leirum.
Dagskrá:
Kosningarétt hafa þeir félagar deildarinnar sem eru skuldlausir við HRFÍ og eiga Írskan setter. Hjón hafa bæði kosningarétt, hvort sem þau greiða félagsgjald HRFÍ sem hjónagjald eða í sitt hvoru lagi. Stjórn hvetur alla félaga sem áhuga hafa á starfi deildarinnar til að mæta. Í dag var Norðurljósasýning HRFÍ. 7 hundar voru skráðir en einungis 4 mættu. Allir hundar fengu excellent og meistaraefni. BOB: C.I.E. ISShCh Gwendariff Choc Nut Chip (Hneta) BOS: Cilleigne Adair (Íri) Hneta endaði daginn á að verða í 3. sæti í tegundarhóp. Einnig fékk Íri síðasta íslenska meistarastigið til að klára sýningameistaratitilinn. Innilega til hamingju allir með þessa fallegu hunda. Nánari úrslit og dóma má nálgast hér |
Archives
March 2024
Categories |