Um helgina fór fram tvöföld sýning HRFÍ í frábæru veðri. Á laugardeginum var Reykjavík Winner og NKU sýning en á sunnudeginum alþjóðleg sýning. 11 írskir setar voru skráðir til leiks en 9 mættu báða dagana. Úrslit laugardags: BOB: C.I.E. ISShCh Gwendariff Choc Nut Chip (Hneta) BOS: ISShCh Cilleigne Adair (Íri) Bæði hlutu þau titilinn Reykjavík Winner 2019 eða RW19 Hneta varð svo í 4 sæti í tegundarhóp. Nánari úrslit og umsagnir má finna hér: https://www.hundeweb.dk/udstilling-resultat/udstilling/190343 Úrslit sunnudags: BOB: Trawricka Promises Promises (Lúna) Enginn rakki hlaut meistaraefni. Lúna fékk sitt síðasta íslenska meistarastig og CACIB og uppfyllir nú öll skilyrði til að hljóta titilinn ISShCh. Hún toppaði svo daginn með 3 sæti í tegundarhóp. Nánari úrslit og umsagnir má finna hér: https://www.hundeweb.dk/udstilling-resultat/udstilling/190344 Frábær sýningarhelgi að baki í góðum félagsskap í sérstaklega góðu veðri og má vona að veðrið leiki svona við okkur aftur í ágúst þegar næsta útisýning verður haldin.
0 Comments
|