Ársfundur Írsk setter deildar var haldin þann 29. mars 2022 að Tröllateig 29, kl. 20:00 og var dræm mæting.
Margrét Kjartansdóttir var kosin fundarstjóri og Auður Inga Einarsdóttir kostin ritari. Lögmæti fundarins var kannað og löglega var boðað til fundarins. Var hann auglýstur á Facebook síðu deildarinnar, deildarsíðu HRFÍ og einnig vefsíður HRFÍ undir deildarfréttir. Skýrsla stjórnar: Formaður lagði fram skýrslu stjórnar og var hún samþykkt samhljóða. Kosning stjórnar: Tvö sæti voru laus í stjórn. Margrét og Hreiðar eiga að ganga úr stjórn. Margrét gaf kost á sér áfram en Hreiðar gaf ekki kost á sér áfram og kunnum við honum þakkir fyrir það starf sem hann hefur unnið fyrir deildina. Auður Inga Einarsdóttir gaf kost á sér í stjórn og var hún ásamt Margréti því sjálfkjörnar í stjórn til næstu tveggja ára. Stjórnina skipa nú: Auður Inga Einarsdótti Ásdís Bragadóttir Egill Bergmann Jóhannes Smári Ólafsson Margrét Kjartansdóttir Önnur mál: Reynt verður að finna dag þar sem farið verður í göngu með hundana og mun það vera auglýst síðar. Ekki fleira var rætt og fundi slitið kl. 9:00
0 Comments
|