Ársfundur Írsk setter deildar HRFÍ var haldinn 21. mars 2024 í húsnæði HRFÍ í Hafnarfirði kl. 20.00
Dagskrá fundarins:
Formaður setti fundinn og bar fram tillögu að Margrét Kjartansdóttir yrði fundarstjóri og Auður Inga Einarsdóttir yrði ritari. Var það samþykkt einróma. Fundarstjóri byrjaði á því að kanna lögmæti fundarins og tilkynnti formaður að fundurinn hafi verið auglýstur á Facebook síðu deildarinnar, á deildarsíðunni og á síðu HRFÍ með meira en sjö daga fyrirvara. Telst því fundurinn lögmætur. Formaður lagði fram skýrslu stjórnar og var hún samþykkt einróma. Í skýrslunni var farið yfir sýningarúrslit 2023, hverjir höfðu hlotið meistaratitla á árinu, stigahæsta hund og ræktanda deildarinnar, augnskoðanir, mjaðmamyndatökur og önnur mál s.s. stórhundadaga og fulltrúaráðsfund. Tvö sæti voru laus í stjórn og áttu Margrét og Auður að ganga út stjórn. Gáfu þær ekki kost á sér aftur en Sigríður Kjartansdóttir og Ingunn Alda Sævarsdóttir gáfu kost á sér og voru þær sjálfkjörnar þar sem ekki komu fleiri framboð. Önnur mál voru rædd og m.a. rætt um deildarsýninguna sem verður 19. maí 2024 og er mikil ánægja að hafa deildarsýningu. Einnig var rætt um hvort ætti að reyna að safna saman netföngum til að hægt sé að ná kannski betur til þeirra sem eru í deildinni en hingað til hafa deildarmeðlimir sýnt lítinn áhuga á nokkru starfi né skemmtunum innan deildarinnar. Rætt var um St. Patricks dag þar sem mikið er um úti í heimi að Írsk setter eigiendur komi saman með hundana sína og gangi um miðbæinn og lagt var til að kanna áhuga deildarmeðlima um að reyna slíkt hér á Íslandi á næsta ári. Að lokum þakkaði formaður fráfarandi stjórnarmönnum, Margréti og Auði fyrir þeirra starf í þágu deildarinnar og bauð jafnframt nýja stjórnarmenn, Sigríði og Ingunni velkomna í stjórn. Ekki fleira var rætt á fundinum og honum slitið kl. 20:55.
0 Comments
Haldin var Norðurljósasýning HRFÍ helgina 2. – 3. mars og voru 11 hundar skráðir en tveir mættu ekki. Sjö hundar fengu Excellent og tveir Very Good.
Úrslit: BOB: Melahofs Karri með CK, CACIB og var í þriðja sæti í tegundarhópi 7 BOS: Eðal Prímadonna með CK, CC og CACIB Eðal ræktun var með ræktunar hóp og fékk HP ÆP Dómari var Diane Stewart-Ritchie frá Írlandi Ársfundur Írsk setter deildarinn verður haldinn 21. mars 2024 í húsnæði HRFÍ að Melabraut 17, kl. 20:00
Dagskrá:
Kosningarétt hafa þeir félagar deildarinnar sem eru skuldlausir við HRFÍ og eiga Írskan setter. Hjón hafa bæði kosningarétt, hvort sem þau greiða félagsgjald HRFÍ sem hjónagjald eða í sitt hvoru lagi. Helgina 25. – 26. nóvember 2023 var haldin Winter Wonderland og Norðurlandasýning og voru 13 Írskri setar skráðir. Einn mætti ekki. Níu fengu Excellent og þrír Very good,
BOB: Caemgen‘s Jump For Joy með NCAC og var í 2. sæti í tegundahópi 7 BOS: Eðal Óskar með NCAC BOB Junior: Glitnir Silvia drottning með ungliðameistarastig og varð besti ungliði í tegundahópi 7 Eðal ræktun var með ræktunarhóp fékk heiðursverðlaun Dómari: David Connolly frá Írlandi Haldin var sýning 7. – 8. október og voru níu hundar skráðir á sýninguna en einn mætti ekki. Sex hundar fengu Excellent og tveir Very Good.
BOB: Eðal Prímadonna með Junior CACIB og var í þriðja sæti í tegundarhópi 7 BOS: Eðal Patrekur með Junior CACIB BOB Junior: Eðal Prímadonna meðJunior CACIB Eðal ræktun var með ræktunarhóp og fékk heiðursverðlaun Haldin var Norðurlandasýning dagana 12. – 13. ágúst og voru 13 hundar skráðir en 2 mættu ekki. Fengu allir excellent.
BOB: Caemgen‘s Jump For Joy, með NCAC og var í 2. sæti í tegundarhópi 7 BOS: Eðal – Óskar, með ísl. meistarastig og NCAC BOB Junior: Eðal – Prímadonna, með ísl. meistarastig, R.NCAC, var BIG Junior og B.I.S. Junior 4 Eðal – ræktun var með ræktunarhóp og fékk heiðursverðlaun. Úrslit 10. Júní – Reykjavík Winner sýning 15 hundar voru skráðir á sýninguna en 1 mætti ekki. 11 hundar fengu Excellent og 3 hundar fengi Very Good. BOB: Melahofs Karri var með Nordic CC, RW-23 og varð í öðru sæti í tegundarhópi 7 BOS: Eðal-Óskadís með Ísl. meistarastig, Nordic CC og RW-23 BOB Junior: Eðal-Prímadonna með Junior meistarstig og varð í fyrsta sæti í besta ungliða í tegundahópi 7 BOS Junior: Eðal-Patrekur með Junior meistarastig og Ísl. meistarastig Eðal-ræktun var með ræktunarhóp og fékk heiðursverðlaun Úrslit 11. Júní – Alþjóðleg sýning 14 hundar voru skráðir á sýninguna og 1 mætti ekki. 10 hundar fengu Excellent og 3 hundar fengu Very Good BOB: Eðal-Prímadonna með Ísl. meistarastig og var í öðru sæti í tegundahópi 7 BOS: Cilleigne Adair með CACIB BOB Junior: Eðal-Prímadonna með Junior meistarastig, Junior CACIB og Ísl. meistarastig og var BIG Junior í tegundahópi 7 og er orðin ungliðameistari BOS Junior: Eðal-Patrekur með Junior meistarastig, Junior CACIB og Ísl. meistarastig og er orðinn ungliðameistari Eðal-ræktun var með ræktunarhóp og fékk heiðursverðlaun Óskum öllum hundum sem tóku þátt til hamingju með árangurinn Aðalfundur Írsk setter deildarinnar var haldinn 20 mars 2023 að Tröllateig 29, Mosfellsbæ kl. 20:00. Dræm mæting var á fundinn.
Lagt var til að Margrét væri fundastjóri og Auður fundaritari og var það samþykkt einróma. Dagskrá fundar:
Skýrsla stjórnar: Fimm sýningar voru haldnar á árinu þar af tvær tvöfaldar. 7-11 hundar mættu á sýningarnar og var árangur þeirra góður. Tveir hundar hlutu meistaratitla og þrír írskir setar komust á lista yfir stigahæstu hunda ársins. Írska setter veiðiprófið var fellt niður sökum dræmrar þátttöku. 3 hundar fóru í augnskoðun á árinu og komu þeir allir vel út. Ein mjaðmaskoðun var skráð á árinu og var niðurstaðan C. Ein tík var flutt inn til landsins Gwendariff Watchthis Space. Tvö got voru á árinu. 4 hvolpar fæddust hjá Eðal ræktun 21.5.2022. 12 hvolpar fæddir 02.09.2023 hjá Glitnir ræktun. Ekki var næg þátttaka hjá félagsmönnum að taka þátt í stórhundadögum hjá Garðheimum. Engin mönnun var á básnum. Einn hittingur var auglýstur á vegum deildarinnar þann 15.maí 2022. Dræm þátttaka var í gönguna og var fallið frá öðrum fyrirhuguðum göngum á vegum deildarinnar þar sem lítill áhugi virðist vera á hittingi hjá félögum í deildinni. Þrír stjórnarfundir voru haldnir á árinu. Stjórn óskar öllum eigendum írska seta, sem tekið hafa þátt í sýningum, til hamingju með árangurinn. Stjórnarkjör: Þrjú sæti voru laus. Jóhannes, Ásdís og Egill eiga að ganga úr stjórn. Öll þrjú gáfu kost á sér áfram og enginn annars gaf kost á sér. Voru þau öll kosin einróma aftur til stjórnarsetu næstu tveggja ára. Stjórnina skipa því næsta árið: Ásdís Bragadóttir Egill Bergmann Auður Inga Einarsdóttir Jóhannes Smári Ólafsson Margrét Kjartansdóttir Ný stjórn mun koma fljótlega saman og skipta með sér verkum. Önnur mál: Engin önnur mál voru lögð fram á fundinum Fundi slitið kl. 20:30. |