Ársfundur deildarinnar verður haldinn þriðjudaginn 29. mars kl. 20:00 að Tröllateig 29, Mosfellsbæ.
Dagskrá: Ársskýrsla stjórnar Stjórnarkjör - tvö sæti laus til 2ja ára Önnur mál Kosningarétt hafa þeir félagar deildarinnar sem eru skuldlausir við HRFÍ og eiga Írskan setter. Hjón hafa bæði kosningarétt, hvort sem þau greiða félagsgjald HRFÍ sem hjónagjald eða í sitt hvoru lagi.
0 Comments
Þann 5 – 6. mars var haldin Norðurljósasýning í reiðhöll Spretts í Kópavogi og mættu 7 Írskir setar til leiks.
Úrslit: BOB: Caemgen‘s Jump For Joy, fékk íslensk og alþjóðlegt meistarastig og var í 1. sæti í tegundarhópi 7 BOS: Eðal Óskar, var einnig besti ungliðinn og fékk ungliðameistarastig Besti hvolpur: Cararua Charm fékk sérlega lofandi Eðal-ræktun var með ræktunarhóp og fékk heiðursverðlaun Fengu aðrir hundar allir Excellent Dómari: Juha Putkonen frá Finnlandi Óskum eigendum og hundum til hamingju með árangurinn |