Ársfundur Írsk setterdeildar var haldinn 20. maí á Tröllateigi 29, Mosfellsbæ.
Tvö sæti voru laus í stjórn og bárust þrjú framboð. Kosningu til tveggja ára hlutu Margrét Kjartansdóttir og Hreiðar Karlsson. Guðrún Dögg gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og þakkar stjórn henni samstarfið undanfarin fjögur ár. Núverandi stjórn skipa: Elín Gestsdóttir formaður, Egill Bergmann, Ásdís Bragadóttir, Margrét Kjartansdóttir og Hreiðar Karlsson
0 Comments
Ársfundur deildarinnar verður haldinn að Tröllateig 29, Mosfellsbæ þann 20. maí nk. kl. 20:00
Við munum að sjálfsögðu fara eftir tilmælum sóttvarnarlæknis og halda uppi 2m reglunni. Dagskrá:
Kosningarétt hafa skuldlausir félagar HRFÍ sem eiga írskan setter. Hjón hafa bæði kosningarétt, hvort sem þau greiða félagsgjald HRFÍ sem hjónagjald eða í sitt hvoru lagi. Stjórn hvetur alla félaga til að mæta og taka þátt í deildarstarfinu. |