Ársfundur deildarinnar verður haldinn mánudaginn 20. mars kl. 20:00 að Tröllateig 29, Mosfellsbæ.
Dagskrá: Ársskýrsla stjórnar Stjórnarkjör – þrjú sæti laus til 2ja ára Önnur mál Kosningarétt hafa þeir félagar deildarinnar sem eru skuldlausir við HRFÍ og eiga Írskan setter. Hjón hafa bæði kosningarétt, hvort sem þau greiða félagsgjald HRFÍ sem hjónagjald eða í sitt hvoru lagi.
0 Comments
Haldin var Norðurljósasýning helgina 4. – 5. mars 16 hundar voru skráðir að þessu sinni en 3 mættu ekki. Úrslitin voru þannig: BOB: Caemgen‘s Jump For Joy, með CACIB og var hún í 1. sæti í tegundarhópi 7 BOS: Melahofs Karri með ísl. m stig og CACIB Besti hvolpur: Glitnir Silvia drottning og var hún í 4. sæti í besta hvolpi sýningar Besti ungliðinn: Eðal Prímadonna með Junior CACIB og besti Junior í tegundarhópi 7 5 hvolpar voru sýndir og fengu þeir allir SL. Winter Wonderland sýning – NKU Norðurlanda- & Crufts Qualification sýning 26. – 27. nóvember 2022.9/12/2022 11 hundar voru skráðir á sýninguna.
Nýr titill var veittur á þessari sýningu Ísland Winner (ISW-22) Úrslit voru: BOB: Cilleigne Adair fékk titilinn ISW-22 og Nord stig og varð hann í 2. sæti í tegundahópi 7 BOS: Eðal Nóra, fékk titilinn ISW-22 og Nord stig Besti hvolpur: Eða Prímadonna með SL Besti ungliði: Gwendariff Watchthis Space fékk ISJW-22, Res Nord stig og er nú ISJCh. Haldin var alþjóðleg sýning 8. – 9. október og voru 11 hundar skráðir en tveir mættu ekki.
BOB: ISShCh RW – 18 – 19 – 21 – 22 Cilleigne Adair og var hann í 3ja sæti í tegundarhópi 7. Fékk hann sitt fjórða CACIB og bíður nú eftir staðfestingu á að verða alþjóðlegur sýningameistari BOS: Gwendariff Watchthis Space BOB Junior: Gwendariff Watchthis Spase með M.stig, ungl.m.stig, ungl. CACIB og var í 3ja sæti í Junior tegundarhópi 7. Besta ungviði: Eðal-Prímadonna með SL Haldin var sýning á Víðistaðatúni helgina 20. og 21. ágúst og voru 12 hundar skráðir en tveir mættu ekki. Úrslit: BOB var Eðal-Óskar með Norðurlandameistarastig og var hann svo í 2. sæti í tegundarhópi 7 BOS var Eðal-Óskadís með vara Norðurlandameistarastig Eðal-ræktun fékk heiðursverðlaun fyrir ræktunarhóp Einn hundur fékk einkunina Good, einn var ekki hægt að dæma og aðrir fengu Excellent Dómari var Henric Fryckstrand Helgina 11. – 12. júlí var haldin alþjóðleg- og Reykjavík Winner sumarsýning HRFÍ og tóku 8 írskir setar þátt.
Úrslit: Besti hvolpur var Cararua Charm með SL Besti ungliði var Melahofs Karri með ungliðameistarastig BOB var ISShCh Caemgen‘s Jump For Joy með CACIB og var hún í 2. sæti í tegundarhóp 7 BOS var ISShCh Cillegne Adair með CACIB Einn fékk VG og aðrir fengu Excellent. Dómari var Bertil Lundgren frá Svíþjóð. Ársfundur Írsk setter deildar var haldin þann 29. mars 2022 að Tröllateig 29, kl. 20:00 og var dræm mæting.
Margrét Kjartansdóttir var kosin fundarstjóri og Auður Inga Einarsdóttir kostin ritari. Lögmæti fundarins var kannað og löglega var boðað til fundarins. Var hann auglýstur á Facebook síðu deildarinnar, deildarsíðu HRFÍ og einnig vefsíður HRFÍ undir deildarfréttir. Skýrsla stjórnar: Formaður lagði fram skýrslu stjórnar og var hún samþykkt samhljóða. Kosning stjórnar: Tvö sæti voru laus í stjórn. Margrét og Hreiðar eiga að ganga úr stjórn. Margrét gaf kost á sér áfram en Hreiðar gaf ekki kost á sér áfram og kunnum við honum þakkir fyrir það starf sem hann hefur unnið fyrir deildina. Auður Inga Einarsdóttir gaf kost á sér í stjórn og var hún ásamt Margréti því sjálfkjörnar í stjórn til næstu tveggja ára. Stjórnina skipa nú: Auður Inga Einarsdótti Ásdís Bragadóttir Egill Bergmann Jóhannes Smári Ólafsson Margrét Kjartansdóttir Önnur mál: Reynt verður að finna dag þar sem farið verður í göngu með hundana og mun það vera auglýst síðar. Ekki fleira var rætt og fundi slitið kl. 9:00 Ársfundur deildarinnar verður haldinn þriðjudaginn 29. mars kl. 20:00 að Tröllateig 29, Mosfellsbæ.
Dagskrá: Ársskýrsla stjórnar Stjórnarkjör - tvö sæti laus til 2ja ára Önnur mál Kosningarétt hafa þeir félagar deildarinnar sem eru skuldlausir við HRFÍ og eiga Írskan setter. Hjón hafa bæði kosningarétt, hvort sem þau greiða félagsgjald HRFÍ sem hjónagjald eða í sitt hvoru lagi. Þann 5 – 6. mars var haldin Norðurljósasýning í reiðhöll Spretts í Kópavogi og mættu 7 Írskir setar til leiks.
Úrslit: BOB: Caemgen‘s Jump For Joy, fékk íslensk og alþjóðlegt meistarastig og var í 1. sæti í tegundarhópi 7 BOS: Eðal Óskar, var einnig besti ungliðinn og fékk ungliðameistarastig Besti hvolpur: Cararua Charm fékk sérlega lofandi Eðal-ræktun var með ræktunarhóp og fékk heiðursverðlaun Fengu aðrir hundar allir Excellent Dómari: Juha Putkonen frá Finnlandi Óskum eigendum og hundum til hamingju með árangurinn
|