Ársfundur Írsk setterdeildar var haldinn 22. mars 2021 að Leirum.
Þrjú sæti voru laus í stjórn og bárust þrjú framboð. Kosningu til tveggja ára hlutu Egill Bergmann, Ásdís Bragadóttir og Jóhannes Smári Ólafsson. Elín Gestsdóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og þakkar stjórn henni samstarfið undanfarin ár. Núverandi stjórn skipa: Ásdís Bragadóttir, formaður, Egill Bergmann, Hreiðar Karlsson, Jóhannes Smári Ólafsson, ritari og Margrét Kjartansdóttir.
0 Comments
Leave a Reply. |
Archives
March 2024
Categories |