Ársfundur Írsk setter deildar HRFÍ var haldinn 21. mars 2024 í húsnæði HRFÍ í Hafnarfirði kl. 20.00
Dagskrá fundarins:
Formaður setti fundinn og bar fram tillögu að Margrét Kjartansdóttir yrði fundarstjóri og Auður Inga Einarsdóttir yrði ritari. Var það samþykkt einróma. Fundarstjóri byrjaði á því að kanna lögmæti fundarins og tilkynnti formaður að fundurinn hafi verið auglýstur á Facebook síðu deildarinnar, á deildarsíðunni og á síðu HRFÍ með meira en sjö daga fyrirvara. Telst því fundurinn lögmætur. Formaður lagði fram skýrslu stjórnar og var hún samþykkt einróma. Í skýrslunni var farið yfir sýningarúrslit 2023, hverjir höfðu hlotið meistaratitla á árinu, stigahæsta hund og ræktanda deildarinnar, augnskoðanir, mjaðmamyndatökur og önnur mál s.s. stórhundadaga og fulltrúaráðsfund. Tvö sæti voru laus í stjórn og áttu Margrét og Auður að ganga út stjórn. Gáfu þær ekki kost á sér aftur en Sigríður Kjartansdóttir og Ingunn Alda Sævarsdóttir gáfu kost á sér og voru þær sjálfkjörnar þar sem ekki komu fleiri framboð. Önnur mál voru rædd og m.a. rætt um deildarsýninguna sem verður 19. maí 2024 og er mikil ánægja að hafa deildarsýningu. Einnig var rætt um hvort ætti að reyna að safna saman netföngum til að hægt sé að ná kannski betur til þeirra sem eru í deildinni en hingað til hafa deildarmeðlimir sýnt lítinn áhuga á nokkru starfi né skemmtunum innan deildarinnar. Rætt var um St. Patricks dag þar sem mikið er um úti í heimi að Írsk setter eigiendur komi saman með hundana sína og gangi um miðbæinn og lagt var til að kanna áhuga deildarmeðlima um að reyna slíkt hér á Íslandi á næsta ári. Að lokum þakkaði formaður fráfarandi stjórnarmönnum, Margréti og Auði fyrir þeirra starf í þágu deildarinnar og bauð jafnframt nýja stjórnarmenn, Sigríði og Ingunni velkomna í stjórn. Ekki fleira var rætt á fundinum og honum slitið kl. 20:55.
0 Comments
Leave a Reply. |
Archives
March 2024
Categories |