Aðalfundur Írsk setter deildarinnar var haldinn 20 mars 2023 að Tröllateig 29, Mosfellsbæ kl. 20:00. Dræm mæting var á fundinn.
Lagt var til að Margrét væri fundastjóri og Auður fundaritari og var það samþykkt einróma. Dagskrá fundar:
Skýrsla stjórnar: Fimm sýningar voru haldnar á árinu þar af tvær tvöfaldar. 7-11 hundar mættu á sýningarnar og var árangur þeirra góður. Tveir hundar hlutu meistaratitla og þrír írskir setar komust á lista yfir stigahæstu hunda ársins. Írska setter veiðiprófið var fellt niður sökum dræmrar þátttöku. 3 hundar fóru í augnskoðun á árinu og komu þeir allir vel út. Ein mjaðmaskoðun var skráð á árinu og var niðurstaðan C. Ein tík var flutt inn til landsins Gwendariff Watchthis Space. Tvö got voru á árinu. 4 hvolpar fæddust hjá Eðal ræktun 21.5.2022. 12 hvolpar fæddir 02.09.2023 hjá Glitnir ræktun. Ekki var næg þátttaka hjá félagsmönnum að taka þátt í stórhundadögum hjá Garðheimum. Engin mönnun var á básnum. Einn hittingur var auglýstur á vegum deildarinnar þann 15.maí 2022. Dræm þátttaka var í gönguna og var fallið frá öðrum fyrirhuguðum göngum á vegum deildarinnar þar sem lítill áhugi virðist vera á hittingi hjá félögum í deildinni. Þrír stjórnarfundir voru haldnir á árinu. Stjórn óskar öllum eigendum írska seta, sem tekið hafa þátt í sýningum, til hamingju með árangurinn. Stjórnarkjör: Þrjú sæti voru laus. Jóhannes, Ásdís og Egill eiga að ganga úr stjórn. Öll þrjú gáfu kost á sér áfram og enginn annars gaf kost á sér. Voru þau öll kosin einróma aftur til stjórnarsetu næstu tveggja ára. Stjórnina skipa því næsta árið: Ásdís Bragadóttir Egill Bergmann Auður Inga Einarsdóttir Jóhannes Smári Ólafsson Margrét Kjartansdóttir Ný stjórn mun koma fljótlega saman og skipta með sér verkum. Önnur mál: Engin önnur mál voru lögð fram á fundinum Fundi slitið kl. 20:30.
0 Comments
Leave a Reply. |
Archives
March 2024
Categories |